Í morgun fór fram morgunverðarfundur hjá Fagfélögunum, VR og LÍV um verðbólgu, verðlag og laun. Bar hann yfirskriftina Eggið eða hænan. Þar voru ræddar þær blikur sem eru á lofti í efnahagsmálum og að allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Halla Gunnarsdóttir var fundarstjóri og stýrði pallborðsumræðu og hún kom til okkar.
Vestfirðingar eru allt annað en sáttir við að ferjan Baldur hafi í þriðja sinn á skömmum tíma verið tekin úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð. Bæjarstjórn Vesturbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun Vegagerðarinnar í nýlegri bókun. Þar segir að það sé með öllu óboðlegt að að þessi staða komi niður á þjónustu í heilum landsfjórðungi sem ekki nýtur samkeppnishæfra innviða, skerðingu á fjölda flugferða og situr uppi með eilífar tafir í vegaframkvæmdum. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar var á línunni.
Við kíktum niður í aðalmyndver sjónvarpsins þar sem undirbúningur fyrir HM var í fullum gangi. Opnunarleikurinn er í kvöld og við náðum tali við Eddu Sif Pálsdóttur sem heldur utan um herlegheitin.
Föstudaginn 19. júní býður Siðmennt pörum að segja „já“ í stuttri, hátíðlegri og lögformlegri hjónavígslu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þetta er í fimmta sinn sem Siðmennt stendur fyrir þessum vinsæla viðburði þar sem einfaldleikinn og merkingin fara saman. Til að segja okkur nánar frá deginum og stemningunni sem bíður para kom formaður Siðmenntar, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, til okkar.
Lífið er fótboltaleikur er bók sem hefur að geyma fyndnar, forvitnilegar og fáheyrðar sögur úr fótboltaheiminum. Í bókinni er farin fremur óhefðbundin leið til að gera upp heimsmeistaramót karla í knattspyrnu en þetta er fyrst og fremst saga þess sem ekki gerðist á vellinum. Bjarni Stefán Konráðsson höfundur bókarinnar kom til okkar.
Íbúar í hverfi 108 bíða enn eftir niðurstöðu úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála vegna Kaffistofu Samhjálpar sem á að opna síðar í þessum mánuði við Grensásveg 46. Á fimmta tug íbúa lögðu fram stjórnsýslukæru vegna kaffistofunnar. Þeir vilja að framkvæmdirnar verði stöðvaðar og að leyfið fyrir kaffistofunni verði fellt úr gildi. Íris Hrund Sigurðardóttir talsmaður íbúahóps í Gerðunum kom til okkar.