Mette-Marit krónprinsessa Noregs er komin á biðlista eftir lungnaígræðslu. Átta ár eru liðin frá því að hún greindist með lungnatrefjun en heilsu hennar hefur hrakað verulega og er sjúkdómurinn nú sagður ógna lífi hennar. Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins hefur fylgst grannt með fréttum af konungsfjölskyldunni, og var á línunni.
Stjórnendur gervigreindarfyrirtækisins Anthropic kalla eftir því að hlé verði gert á þróun nýjustu gervigreindakerfanna á alþjóðavísu. Þetta kom fram í færslu á vef fyrirtækisins í gær en þar er varað við því að mannfólkið missi völd yfir gervigreindinni. Aðeins tveimur dögum fyrr undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti sérstaka forsetatilskipun þar sem gervigreindarhönnuðir eru hvattir til að deila háþróuðum gervigreindarlíkönum með stjórnvöldum allt að 30 dögum fyrir opinbera útgáfu þeirra til að leyfa stjórnvöldum að meta öryggi þeirra. Við ræddum við Gísla Rafn Ólafsson sérfræðing um þróun gervigreindarinnar.
Brautarholtsvöllur á Kjalarnesi hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka staðsetningu sína við sjóinn og stórbrotið útsýni yfir Faxaflóa. Völlurinn hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu og er meðal annars á listum yfir bestu golfvelli heims og Evrópu. Klúbburinn var stofnaður árið 2011 og nýverið varð völlurinn tekinn í notkun sem 18 holu völlur. Gunnar Páll Pálsson, formaður Golfklúbbs Brautarholts, kom í Síðdegisútvarpið.
Nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn í Bolungarvík og um leið hefur verið skrifaður nýr kafli í sögu bæjarins. Jóhanna Ósk Halldórsdóttir verður fyrsta konan til að gegna embætti bæjarstjóra í Bolungarvík. Hún kemur til starfans með mikla reynslu úr atvinnulífinu á Vestfjörðum og hefur undanfarin ár stýrt starfsemi Eimskips og Sæferða á svæðinu. Við heyrðum í Jóhönnu.
Fulltrúar stærstu skemmtiferðaskipafélaga heims hafa undanfarna daga verið á ferðalagi um Ísland í þeim tilgangi að kynnast áfangastöðum, innviðum og þeirri upplifun sem landið hefur upp á að bjóða. Að sögn voru gestirnir í sjöunda himni með ferðina. Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, kom til okkar og sagði frá ferðalaginu, viðbrögðum gestanna og framtíð íslenskrar skemmtiferðaskipaþjónustu.
Sjómannadagurinn er á sunnudaginn. Hann er haldin hátíðlegur víða um land. Í Reykjavík eru það Sjómannadagsráð, Brim og Faxaflóahafnir sem halda utan um skemmtunina. Við ræddum við, Aríel Pétursson, sem formaður Sjómannadagsráðs, í lok þáttar.