
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Þrír milljarðar verða settir til viðbótar í viðhald vega á landsbyggðinni árið 2025. Alþingi samþykkti tillögu ríkisstjórnarinnar þessa efnis þegar fjáraukalög voru afgreidd á laugardag. Við ræddum við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra.
Hugbúnaðarfyrirtækið Justikal er nú komið á skrá yfir viðurkennda póstþjónustuaðila hjá Byggðastofnun. Justikal er þekktast fyrir að hanna stafrænt réttarkerfi sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt. Fyrirtækið hefur nú skráð þjónustuna fyrir Öruggar rekjanlegar gagnasendingar sem póstþjónustu hjá Byggðastofnun. Þetta var gert í kjölfar úrskurðar frá Héraðsdómi Suðurlands í dómsmáli. Margrét Anna Einarsdóttir framkvæmdarstjóri og stofnandi Justikal kom til okkar.
Mikill meirihluti félagsmanna samtaka fyrirækja á veitingamarkaði, eða SVEIT er ósáttur við samskipti sín við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Einar Bárðarson framkvæmdastjóri samtakanna kom til okkar.
Brúðkaupsskipuleggjendur eru starfsstétt sem maður hélt kannski að væru bara til í amerískum bíómyndum en svo er alls ekki, og þessi þjónusta er í boði her á landi sjái pör ofsjónum yfir því að skipuleggja stóra daginn sjálf. Við fengum Alínu Vilhjálmsdóttur hjá Og smáatriðin til að segja okkur allt um þetta.
Enn er fundað á alþingi, en það gæti dregið til tíðinda á eftir þegar formenn þingflokkanna funda með forseta alþingis. Við fórum yfir stöðuna með Magnúsi Geir Eyjólfssyni fréttamanni

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.