Morgunútvarpið

16. Desember - Óður til Breiðholts, Súðavíkurskýrslan, nostalgía o.fl.

Jólaölsskortur plagar Nostalgíu, íslenska barinn á Tenerife. Þar eiga þau hins vegar ráð undir rifi hverju og bjóða ískaldan kokteil í skiptum fyrir einn líter af jólaöli. Morgunútvarpið heyrði í Herdísi Hrönn Árnadóttur og kannaði viðtökurnar ásamt því forvitnast um hvernig jólahátíðin leggst í eyjaskeggja en eins og alltaf eru fjölmargir Íslendingar á leiðinni á eyjuna fögru til halda upp á hátíð ljóss og friðar í sól og blíðu.

Óður til æskunnar og óður til Breiðholts -Það eru orð sem hafa verið látin falla um myndlistarsýningu systranna Sóleyjar Þorvaldsdóttur og Tinnu Þorvalds -Önnudóttur. Við fengum heyra meira.

Niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík í janúar 1995 voru kynntar í gær. Fjórtán fórust í flóðinu, þar af átta börn. Lengi hefur verið kallað eftir því viðbrögð og aðdragandi verði rannsakaður. Maya Hrafnhildardóttir sem missti foreldra sína í flóðinu og Sigríður Rannveig Jónsdóttir sem missti ungt barn sitt komu til okkar.

Instagram hefur afhjúpað nýjan eiginleika sem á gera notendum kleift stilla eigið algrím. Þannig ættu notendur geta ráðið hvers konar færslur þeir sjá, eitthvað sem hefur hingað til verið sjálfvirkt en þó byggt á því sem fólk sýnir áhuga hverju sinni. Með þessu vill Instagram einhverju leyti setja valdið í hendur notenda sem eiga geta stýrt betur hvaða efni þeir sjá á miðlinum. Við fengum Tryggva Frey Elínarson í heimsókn til útskýra betur hvað breytingin felur í sér.

Frumflutt

16. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Þættir

,