Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Flugeldar, Ari Eldjárn og árið í himinhvolfinu og íþróttum

Nú styttist í áramótin og þá er ekki úr vegi að kynna sér nýjustu tískustraumana í flugeldum. Hvað er vinsælast? Er eitthvað nýtt á ferðinni eða er þetta alltaf svipað? Morgunútvarpið heyrði í Þorbjörgu Petreu Pálsdóttur hjá Landsbjörgu og kynnti sér málið.

Sævar Helgi Bragason mætti á svæðið með smá ársúttekt úr himinhvolfinu.

Ari Eldjárn er farinn af stað með Áramótaskopið sitt enn á ný. Hann mætti í spjall og við fórum yfir hápunkta ársins með einum fyndnasta manni landsins.

Hvað bar hæst í íþróttunum á árinu? Þorkell Gunnar fór yfir sviðið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,