Morgunútvarpið

8. okt. -Rökkurfræði, skítaveður, grunsamleg andlát o.fl..

Við höldum áfram skoða hvernig við komumst sem best af í haustinu. Jakub Stachowiak skáld, rithöfundur og bókavörður verður á línunni.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir veður dagsins allrar athygli vert. Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn. Hann lítur við hjá okkur.

Í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær var fjallað um geðsjúka fanga sem eru hafðir í einangrun í íslenskum fangelsum vikum og jafnvel mánuðum saman. Við ræðum þessi mál áfram við Grím Atlason, framkvæmdastjóra Geðhjálpar.

Í gær var sagt frá því rússneska lögreglan rannsaki andlát fyrrum útgefanda Pravda. Hann lést eftir fall út um glugga á heimili sínu í 21 metra hæð. Andlát útgefandans er það síðasta í röð andláta málsmetandi fólks sem ber með óútskýrðum hætti. Við ræðum málið við Rósu Magnúsdóttur sagnfræðing.

Arnar Pétursson, hlaupari og þjálfari, ræðir við okkur um fréttir þess efnis Strava stefni Garmin, þessi íþrótta- og tæknifyrirtæki og hlaupin almennt.

Frumflutt

8. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,