
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Ísrael og Bandaríkin réðust á skotmörk í Íran um helgina. Ali Khameini, æðstiklerkur Íran var drepinn í árásunum ásamt öðrum háttsettum leiðtogum. Íran réðist í kjölfarið á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum og heitir því að hefna árásanna grimmilega. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Íran, kom til okkar í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.
Hvað er að frétta úr heimi tækninnar? Það er enginn betur til þess fallinn að greina okkur frá því en hinn stimamjúki Guðmundur Jóhannsson, sem mætti stútfullur af visku um magnaðar tækniframfarir.
Loftvarnakerfið í Barein keppist nú við að skjóta niður eldflaugar Írana sem þeir skjóta að landinu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran. Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir hefur búið í Barein í 14 ár og upplifir nú nýjan veruleika á þessum ófriðartímum. Hún var á línunni frá Barein.
Fjárhættuspil eru að sækja í veðrið hjá ungu fólki á Íslandi enda beinist markaðssetning slíkra fyrirtækja sífellt meira að þeim. Ragný Þóra Guðjohnsen og Unnar Geirdal Arason hafa rannsakað fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi og við fórum yfir niðurstöðurnar með Ragný, sem er dósent og faglegur stjórnandi íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ, þekkir vel til og hann tók umræðuna með okkur.
Einar Örn Jónsson frá íþróttadeildinni kom til okkar í Morgunútvarpið og fjallaði um hvernig það sem er að gerast í alþjóðastjórnmálum hefur áhrif á íþróttaviðburði.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.