
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Stefán Atli Rúnarsson hefur undanfarin misseri frætt fólk um hin ýmsu gervigreindartól og alls hafa um 1.500 eldri borgarar sótt hjá honum námskeið. Stefán segir að það sé ákveðið sjálfstæði fólgið í því að kunna á ný tæki og að það sé mikilvægt að eldri kynslóðir séu þátttakendur í tækniþróuninni en ekki skilin eftir á hliðarlínunni. Við fengum Stefán Atla til okkar.
Annað kvöld stendur Sorgarmiðstöð fyrir sérstökum viðburði í Vídalinskirkju tileinkuðum karlmönnum í sorg. Markmið kvöldsins er að mæta eins og maður er, eiga góða stund saman og minna á að enginn þarf að bera sorg eða erfiðleika einn. Þetta verður fyrsti viðburður Sorgarmiðstöðvarinnar í röð viðburða til að hefja starf tileinkað karlmönnum. Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson og Sigurjón Þórðarson komu til okkar í Morgunútvarpið og fræddu okkur um þetta.
Á sunnudaginn er alþjóðlegur dagur án tóbaks. Til að vekja athygli á því og þeirri staðreynd að nikótínnotkun er vaxandi vandamál í okkar samfélagi mætti Jóhanna Kristjánsdóttir formaður Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins en hún er nýkomin frá Mílanó þar sem hún var á tóbaks og nikótínráðstefnu.
Er stærsta þversögnin við Ísland sú að í landi sem virðist ríkt séu sífellt fleiri að upplifa samt stöðuga fjárhagslega pressu? Valerio Gargiulo, rithöfundur, kennari og þýðandi birti áhugaverðan pistil á Vísi á dögunum þar sem hann sagði fólk tala um að það hafi aldrei verið svona dýrt að búa á Íslandi og að það sé orðið of krefjandi fyrir fólk sem er jafnvel með góð laun að gera hluti sem ættu að teljast venjulegir. Við fengum Valerio í spjall.
Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Þóra Tómasdóttir tekur þetta mál allar 360 gráðurnar í Álögunum á Vatnsenda en fyrsti þáttur er þegar farinn í loftið og Þóra kom til okkar í Morgunútvarpið.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.