Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

6. febrúar - Óveður, stjórnmál og gæludýr

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, fer yfir verkefni björgunarsveitanna vegna veðursins.

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, ræðir við okkur um upphaf þings.

Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri á Drafnarsteini ræðir verkföll.

Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, fer yfir fund Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.

Helga Jóhannsdóttir hjá Veitum ræðir rafmagnsleysi í óveðrinu.

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi þingmaður, ræðir óveðrið og horfinn pott.

Sigurður Orri Hafþórsson, lögmaður og framkvæmdastjóri Húseigendafélagsins, verður gestur okkar í lok þáttar þegar við ræðum frumvarp sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ætlar að leggja fram þar sem lagðar eru til breytingar á ákvæðum laga um fjöleignarhús sem varða dýrahald þannig að samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi sé ekki nauðsynlegt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,