
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, verður gestur okkar í upphafi þáttar þegar við ræðum loðnuleitina sem nú er í fullum gangi.
Við ræðum það reglulega hér með Sævari Helga Bragasyni að von er á bylgju ferðamanna í kringum 12. ágúst á næsta ári, þegar almyrkvi sólu verður greinilegur héðan. Annar fastagestur okkar, Björn Berg Gunnarsson, skrifaði grein í gær þar sem hann viðraði áhyggjur sínar af undirbúningsleysi íslensku ferðaþjónustunnar þegar kæmi að þessum risaviðburði. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar kemur til okkar í spjall um málið.
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, ræðir við okkur um fréttir þess efnis að Rússlandsforseti ætli að endurvekja Intervision söngvakeppnina, til höfuðs Eurovision.
Við ræðum stöðuna í borginni við tvo fyrrum borgarfulltrúa, Gísla Martein Baldursson og Björk Vilhelmsdóttur.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sína fyrstu stefnuræðu á Alþingi í gærkvöld. Ræðan átti að vísu að fara fram á miðvikudag í síðustu viku en var frestað vegna ofsaveðurs. Við ætlum að kryfja það sem kom fram á alþingi í gærkvöldi með þingmönnunum Sigmari Guðmundssyni, Viðreisn og Bergþóri Ólasyni, Miðflokki.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.