
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Matthías Már Magnússon dagskrárstjóri Rásar 2 kemur og hitar upp fyrir tónaflóði morgundagsins.
Við ræðum innrás Ísraelsmanna í Gaza borg, þvert á ákall alþjóðasamfélagsins. Möguleika á vopnahléi og fleira Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku, ræðir við okkur um umræðu um málfarsvillur menntamálaráðherra í viðtali á Bylgjunni í gær.
Víða byrja börn aftur í grunnskóla í dag eftir sumarfrí. Við ætlum að ræða stöðu menntamála við Guðmund Ara Sigurjónsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, og Jóni Pétri Zimsen, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, en báðir þekkja grunnskólastarfið vel.
Við förum síðan yfir fréttir vikunnar í lok þáttar með Eddu Hermannsdóttur, samskiptastjóra Íslandsbanka, og Frey Eyjólfssyni, fjölmiðlamanni.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.