
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Við sögðum á dögunum frá því að 29 ríki í Bandaríkjunum hafi kært Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, fyrir að hafa viljandi gert miðla sína ávanabindandi fyrir börn og ungmenni. Sátt hefur náðst í málinu en sviðstjóri hjá Netvís segir að þannig hafi forsvarsmenn fyrirtækisins komist hjá því að svara erfiðum spurningum. Þá séu þær varnir sem Meta ætlar að innleiða á miðlum sínum, til dæmis takmarkanir á skjátíma barna og tilkynningum yfir skólatíma, aðeins plástur á sárið sem ráðist ekki að rót vandans. Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands, ræddi þetta við okkur.
Er íslenska heilbrigðiskerfið í stakk búið til að takast á við vaxandi netáhættu? Hvað þurfa fyrirtæki í geiranum að hafa í huga þegar kemur að öruggum rekstri? Helix stóðu fyrir opnum viðburði um öryggi sjúkragagna og netáhættu í íslensku heilbrigðiskerfi í síðustu viku. Vallý Helgadóttir, frá Helix og Guðrún Valdís, frá netöryggisfyrirtækinu Syndis komu til okkar.
Víða um Evrópu veltir fólk fyrir sér úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi um síðustu helgi. Úrslitin hafa vakið talsverða athygli í Noregi þar sem umræðan um aðild að Evrópusambandinu skýtur alltaf reglulega upp kollinum. Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipar TBWA er varaformaður norsk-íslenska viðskiptaráðsins og sat ráðstefnu þar sem fólk úr norsku viðskiptalífi veltir úrslitunum fyrir sér og hann var á línunni og segja okkur betur frá þessum vangaveltum.
Stjórnendur Sýnar hafa ákveðið að hætta með sjónvarpsfréttir. Þær hafa verið lykilþáttur í starfsemi Stöðvar 2 sem síðar fékk nafnið Sýn. Þetta er talsvert högg fyrir íslenska fjölmiðlun og við ræddum stöðuna á þessum brothætta en mikilvæga bransa við Valgerði Önna Jóhannsdóttur, prófessor í fjölmiðlafræði og Jón Kaldal, fyrrverandi ritstjóra.
Gulur september verður ansi stór hjá Píeta samtökunum í ár en opnað verður fyrir nýtt fjögurra staða símanúmer: 1799. Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur Píeta samtakanna og Bjarni Karls prestur komu til okkar og sögðu okkur frá þessu mikilvæga starfi og Gulum september.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.