• 00:10:17Er samkeppnin á lánamarkaði virk?
  • 00:26:56Súputíðin hafin
  • 00:57:23Sókn í menntamálum í Reykjavík

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Sókn í menntamálum,samkeppni á lánamarkaði og Guðrný Ljósbrá er matgæðingur Morgunútvarpsins

Nú þegar vextir gera fátt annað en að hækka veltum við í Morgunútvarpinu fyrir okkur hvort það sé hægt að spara á því að færa húsnæðislánið annað. Er þetta meira og minna eins alls staðar eða græðir maður því að skoða hvað er í boði og endurfjármagna. Aurbjörg var stofnuð árið 2017 til að auka fjármálalæsi í landinu og sendi okkur Jón Jósep Snæbjörnsson til að gefa okkur svör við þessum vangaveltum.

Við kynnum til leiks nýjan fastan lið í Morgunútvarpinu: Gómsæt umfjöllun um mat. Sælkerinn og matgæðingurinn Guðný Ljósbrá mætir til okkar og fjallar um mat annan hvern mánudag og í dag keyrir hún súputíðina af stað. Haustvindarnir eru byrjaðir að blása og Guðný veltir fyrir sér hvað þarf til að gera súpu að máltíð en svo er þetta spurning um grænmeti, mjóljurvörur og jú, baunir. Verði ykkur að góðu!

Borgarráð samþykkti í síðustu viku tvær tillögur um aðgerðir sem miða að því að blása til sóknar í menntamálum Reykjavíkurborgar til að bæta námsárangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi í leik- og grunnskólum. Þetta kemur í kjölfarið á döprum niðurstöðum í PISA könnun, sem kynntar voru í byrjun september. Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar, kom til okkar og fór yfir vinnuna sem er framundan.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,