• 00:11:26Hagnýt ráð til að nýta Claude
  • 00:29:12Anna Marsý og Ástarsögurnar
  • 00:51:29Vaxandi atvinnuleysi
  • 01:12:58Hlaupaæðið kortlagt

Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Hagnýt ráð um gervigreind, ástarsögur, staðan á vinnumarkaði og hlaupaæðið

Við höldum áfram að gefa fólki hagnýt ráð um gervigreindina og snúum okkur nú að tólinu Claude, sem nýtur mikilla vinsælda núna. Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, tölvunarfræðingur og einn stofnandi sprotafyrirtækisins Revera, heldur námskeið í notkun á Claude og gaf hlustendum nokkur hagnýt ráð.

Anna Marsibil Clausen heldur áfram að þefa uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Í nýrri þáttaröð fer hún um víðan völl á vígvelli ástarinnar.

Forstjóri Vinnumálastofnunar sagði í frétt á Vísi í gær að það væru greinileg merki þess að vinnumarkaðurinn sé að kólna en atvinnuleysi sé meira nú en á sama tíma í fyrra. Þrjú fyrirtæki hafa ráðist í fjöldauppsagnir í maí og það virðist ekkert sérstaklega bjart framundan á vinnumarkaði. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, kom til okkar í Morgunútvarpið.

Allir og amma þeirra eru byrjaðir að reima á sig hlaupaskóna og hlaupa vegalengdir sem áður þóttu óðs manns æði. Við ætlum rýna í hlaupasumarið framundan og taka það allar 360 gráðurnar, tískubylgjurnar, vegalengdrnar og næringin. Torfi H. Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, kom til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,