
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Okkar maður Guðmundur Jóhannsson mætti með allt það nýjasta úr heimi tækninnar. Hvenær kemur hagkvæm og fyrirferðarlítil vél sem brýtur saman þvott með hjálp gervigreindar? er til að mynda spurning sem brennur á öðrum umsjónvarmanni Morgunútvarpsins.
Íbúar í Minnesota í Bandaríkjunum hafa undanfarið mótmælt ICE-liðum, sem hafa ferðast um ríkið og vísað innflytjendum úr landi. 1.500 hermenn eru í viðbragðsstöðu, tilbúnir að ráðast gegn þeim sem mótmælendum, sem ríkisstjórinn Tim Walz hefur hvatt til að mótmæla friðmsamlega. Allt hefur hins vegar verið á suðurpunkti eftir að ICE-liði skaut hina 37 ára gömlu Renee Good til bana. Katrín Frímannsdóttir hefur búið í Minneseota í 35 ár og starfað við menntamál í heilbrigðisgeiranum. Hún kom til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur hvernig líf fólks hefur breyst í Minnesota og hvernig það er að vera innflytjandi í Bandaríkjunum í skugga framgöngu ICE.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skaut því að í framhjáhlaupi í frægu viðtali í Kastljósi í síðustu viku að hún vilji setja aldurstakmark á samfélagsmiðla á Íslandi. Guðmundur Ingi var byrjaður að skoða málið í ráðuneytinu og í Ástralínu eru menn komnir enn lengra; þar er 16 ára aldurstakmark. Sigurður Helgi Pálmason leiðir spretthóp sem á að kanna þetta mál og hann mætti til okkar.
Ísland vann góðan sigur á Póllandi á EM í handbolta í gær eftir að hafa sett Ítalana í gegnum pastavél á föstudag. Við fórum yfir næstu skref með Einar Erni Jónssyni í Svíþjóð.
Í dag fer af stað hringferðin Nýsköpun og ný tengsl en í henni ætla KLAK, Íslandsstofa, Vísindagarðar og Tækniþróunarsjóður að kynna stuðningsumhverfi nýsköpunar á átta stöðum um allt land. Á hverjum viðburði verða fjögur 15 mínútna erindi, þar sem þátttakendur fá kynningu á því stuðningsumhverfi sem stendur til boða. Við hringdum á Svalbarðseyri í Andra Már Þórhallsson, sem rekur Púls Media. Hann seldi íbúðina sína í Reykjavík og flutti á norður til að fjármagna uppbyggingu fyrirtækisins og þekkir vel hversu mikilvægt það er fyrir nýsköpunarfyrirtæki að þiggja þá aðstoð sem er í boði.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.