Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Ragnhildur Kristinsdóttir,Rúnar Hroði og Komið gott af kosningum

GSÍ mótaröðin er efsta stig mótahalds í golfi á Íslandi og hefst með Reykjanesmótinu í dag. Af þessu tilefni ætlum við að fá til okkar atvinnukylfinginn Ragnhildi Kristinsdóttur en hún er einn af okkar fremstu kylfingum og varð Íslandsmeistari árið 2023. Ragnhildur var einu sæti á stigalista frá því að komast inná Evrópumótaröðina síðasta sumar og er fyrsti íslenski kvenkylfingurinn til að vinna alþjóðlegt atvinnumót. Tímabilið hennar fer af stað í lok maí og það verður spennandi að fylgjast með henni í sumar.

Rúnar Hroði Geirmundsson hefur undanfarna mánuði æft fyrir sinn fyrsta járnkarl þrátt fyrir að finnast hlaup, hjól og sund hundleiðinlegt. Rúnar sagði frá þessu í Morgunútvarpinu á dögunum en hann vill safna 12 milljónum fyrir Barnaspítala Hringsins og vökudeildina sem greip hann svo vel og fallega þegar hann var sem berskjaldaðastur. Rúnar er nú mættur til Flórída ásamt fjölskyldu sinni og reimar á sig skóna á morgun. Við heyrum í honum og könnum hvernig hann er stemmdur.

Lokadagur kosningabaráttunnar er genginn í garð og kjördagur framundan. Það er semsagt komið gott af brosmildum frambjóðendum að flippa á TikTok. Til að slútta ítarlegri umfjöllun Morgunútvarpsins um sveitarstjórnarkosningarnar ætlum við að fá til okkar hlaðvarpsdrottningarnar Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur úr hlaðvarpinu Komið gott.

Sveitarstjórnarkosningar, Eurovision, stóra kofamálið. Það hefur ýmislegt gengið á í vikunni og við förum yfir það með okkar mönnum Felix Bergssyni og Gísla Marteini Baldurssyni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,