Morgunútvarpið

9. október - Grænland, mannanöfn og bjórmenning

Danir hyggjast banna börnum yngri en 15 ára nota samfélagsmiðla. Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur tilkynnti þetta í ræðu sinni við setningu danska þingsins á þriðjudaginn. Hvað vitum við um gagnsemi skrefa sem þessa? Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvís netöryggismiðstöðvar Íslands, ræðir það við okkur.

Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, ræðir við okkur um Grænland í ljósi nýrrar bókar hans sem er farin í prentun.

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum frumvarp hans um mannanöfn sem hann mælti fyrir á þingi í gærkvöldi.

Sveinn Waage, fyrirlesari og bjórspekúlant, spurði á Facebook síðu sinni í gær hvort bakslag verða í bjórmenningu. Við ræðum við hann um þau mál.

Hvern hefur ekki dreymt um geta gefið dugnaðarforki heimilisins, ryksugunni, frí eins og eina kvöldstund og farið með hana í bíó? Kannski ekki marga en gefst tækifæri því Bíó Paradís býður fólki taka ryksugur sínar með sér á frumsýningu í kvöld. Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradísar segir okkur frá.

Frumflutt

9. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Þættir

,