Morgunútvarpið

6. okt. -Íranskir peningar, svarthol, leikskólamálin o.fl..

Íranska þingið hefur samþykkt taka fjögur núll af gjaldmiðli landsins. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum landsins, fer yfir málið með okkur.

Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, fer yfir fréttir úr heimi vísindanna.

Talsvert hefur verið tekist á um tillögur stýrihóps umbótum á náms- og starfsumhverfi leikskóla í Reykjavíkurborg sem voru lagðar fyrir í borgarráði í síðustu viku. Guðrún Sólveig leikskólastjóri í leikskólanum Rauðhól og Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Drafnarsteini koma til okkar í spjall um málið.

Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður, fer yfir helgina og það sem framundan er í vikunni.

Hefðbundin þingstörf hefjast aftur í dag eftir kjördæmaviku og kílómetragjaldið er á dagskrá. Við ræðum við Örnu Láru Jónsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingmann Framsóknarflokksins

Frumflutt

6. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,