Samfélagið

Starfsemi SÁÁ, menning á Vestfjörðum og sýklalyf í ferskvatni

Fjölmargir sækja sér árlega meðferð vegna áfengis og vímuefnavanda hjá SÁÁ - samtökum áhugafólks um áfengis og vímuefnavanda. En það hefur margt breyst á undanförnum árum í nálgun á því hvernig er unnið með vímuefnavanda. Við ræðum við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann samtakanna, um starf þeirra.

Í dag fjöllum við líka um vestfirska menningu - á dögunum hittum við Skúla Gautason, menningarfulltrúa Vestfjarða, á Hólmavík, sem fræddi okkur um þróunarstyrk Vestfjarða - og við ræddum líka við fólkið á bakvið Menningarmiðstöðina Norðurfjöru á Hólmavík, sem fékk einmitt styrk úr sjóðnum.

Og lokum kíkir Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, í heimsókn og segir okkur hitt og þetta um sýklalyf í ferskvatni.

Frumflutt

14. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,