Samfélagið

Kynjaþing, þungunarrof í Færeyjum og ræðismaður Nasista í Reykjavík

Um helgina hélt Kvenréttindafélag Íslands kynjaþing í sjöunda skipti. Í ár var þingið haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og ýmislegt var rætt meðal annars hin svokallaða anti-gender-hreyfing, vesturnorræn jafnréttisbarátta og þungunarrofslöggjöf í Færeyjum. Samfélagið kíkti við á þinginu á laugardag til ræða við þau sem þarna voru saman komin, og við heyrum af því í þættinum í dag.

Og samkvæmt venju annan hvern mánudag heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Njörður Sigursson aðstoðarþjóðskjalavörður tekur á móti okkur og segir okkur frá vægast sagt athyglisverðum þýskum ræðismanni á Íslandi árið 1939.

Frumflutt

12. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,