Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Orðið ristabrauð finnst ekki í orðabókum og í rituðu máli er mun algengara að talað sé um ristað brauð. Það þarf þó ekki að þýða að ristabrauð sé ekki til. Mörg orð eru til þótt þau finnist ekki í orðabókum. Það sama á við um ristavél, sem þykir ófínna en samheitið brauðrist. Ristavél er ekki í Íslenskri orðabók og í Íslenskri nútímamálsorðabók er það skýrt með orðinu brauðrist og sagt vera barnamál. Þó er ljóst að fjöldinn allur af fullorðnu fólki notar það.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir