Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Guðni Kolbeinsson sagði „læks“ í stað hins hefðbundna „lækjar“ í eignarfalli orðsins lækur, í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1980. Sá þáttur hefur ekki varðveist en við heyrum annan þátt í umsjón Guðna þar sem lækur kemur óbeint við sögu; og rifjum upp hvað var skrifað um Guðna-málið svokallaða á síðum blaðanna.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir