Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Það er furðudönskuskotið, óþarft og rangt að segja „burtséð frá“ og líka orðin „skemmtilegheit“ og „harðheit“, segir Eiríkur Hreinn Finnbogason, umsjónarmaður Daglegs máls í útvarpinu árið 1956. Hann er líka þreyttur á því að fólk segðist „upplifa“ allt mögulegt og ómögulegt.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir