Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Árni Böðvarsson ræddi í Daglegu máli í febrúar 1955 um eintöluorð eins og fólk, flokkur, fjöldi og þjóð sem hafa fleirtölumerkingu en taka með sér sagnir og ákvæðisorð í eintölu, til dæmis fjöldinn allur af fólki safnaðist saman en ekki söfnuðust saman. Hann ræddi líka um beygingu orðanna gröftur og fiskur og þar má segja að sé fiskur undir steini.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir