Ristabrauð úr ristavél
Orðið ristabrauð finnst ekki í orðabókum og í rituðu máli er mun algengara að talað sé um ristað brauð. Það þarf þó ekki að þýða að ristabrauð sé ekki til. Mörg orð eru til þótt þau…
Eiríkur Rögnvaldsson boðaði minni einstrengingshátt og umvandanir þegar hann tók við umsjón með þættinum Daglegu máli árið 1984. Hann sagðist ekki andvígur því að fólk vandaði mál sitt heldur taldi hann að aukin fræðsla og þekking væri vænlegri leið en boð og bönn til að fá fólk til að vanda mál sitt.
Síðar sama sumar ræddi Eiríkur í Daglegu máli um orð sem venja er að séu höfð í eintölu fá fleirtölu. Um þetta hefur hann oft skrifað pistla eftir að hann gerðist uppgjafaprófessor og tók til við að fræða almenning.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir