Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Hvar ertu ef þú ert úti um hvippinn og hvappinn? Hvar er buskinn sem vill vera áfangastaður þess sem fýkur? Orð af orði er úti um dittinn og dattinn, á tvist og bast og út um Brand og Runólf; og rifjaðar eru upp sögur á bak við orðatiltækin „nóg til á Byggðarenda„ og „hver veit nema Eyjólfur hressist“.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir