Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
„Jeg kalla það ekki formyrkvan, því það er ljótt orð,“ sagði Jónas Hallgrímsson um það þegar tungl myrkvar sólu og gaf því heitið sólmyrkvi.
Þegar Jónas þýddi bók um stjörnufræði úr dönsku bjó hann til fjölmörg íslensk orð yfir hugtök í stjörnufræði, eðlsifræði og stærðfræði. Mörg þeirra eru enn notuð sem íðorð og sum urðu hluti af daglegum orðaforða og lifa enn góðu lífi tæpum 200 árum síðar.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir