Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Sagt er að Árni Magnússon handritasafnari hafi verið fyrsti Íslendingurinn sem ánetjaðist kaffi. Þessi lúxusdrykkur betri borgara varð fyrr en varði í hvers manns bolla og vel má halda því fram að kaffi sé þjóðardrykkur hér á landi, könnun sem gerð var virðist staðfesta að meira sé drukkið af kaffi í bókum Guðrúnar frá Lundi en í öðrum íslenskum skáldsögum. Hvorki virðast þó vera til orðatiltæki né málshættir sem hafa kaffi sem kjarnaorð.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir