Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Skreið til Nígeríu – þetta er vafalaust ein þekktasta blaðafyrirsögn allra tíma. Nú orðið eru sjaldan fluttar fréttir af skreiðarútflutningi og ætla má að orðaforðinn sem tilheyrir skreiðarverkun sé ekki lengur á allra vörum.
Í þættinum er kannaður merkingarmunurinn á orðunum skreið og harðfiskur og spáð í hvort skreið sé aðeins þurrkuð á trönum eða hvort það megi líka kalla þau mannvirki hjalla.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir