Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Greinin „Stikukerfið: tugamál og tugavog“ birtist í Skírni 1908. Jón Jónsson prófastur á Stafafelli í Lóni skrifaði um lög um metramæli og vog sem samþykkt voru á Alþingi árið áður. Jón var ósáttur við að með metrakerfinu var löghelgaður urmullinn allur af útlendum orðum og lagði til í staðinn alíslenskt orð, eins og „stika“ um metra; „mælir“ um lítra; og „met“ í stað hins útlenda gramms.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir