Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Gjaldskylda fékk flest atkvæði í kosningu um orð ársins 2025. Það vakti athygli á nýliðnu ári þegar erlendir ferðamenn merktu myndir við þekkta ferðamannastaði með staðsetningunni Gjaldskylda. Draga mátti þá ályktun að þeir teldu að staðurinn héti það. Fjallað var um orðin tíu sem hægt var að kjósa um og rifjuð upp nokkur orð fyrri ára.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir