Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Tíska er hverfult fyrirbæri, hún kemur og fer og breytist minnst ársfjórðungslega, jafnvel oftar. Það mætti auðveldlega halda því fram að tíska sé tiltölulega nýlegt fyrirbæri á Íslandi, hafi jafnvel ekki komið til sögunnar fyrr en kannski um miðja 20. öld. En svo einfalt er það víst ekki.
Í þessum þætti verður spáð í tískuna – orðið, það er að segja – aldur þess og merkingu, hlutverk, samheiti og samsetningar sem byrja og enda á tísku.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir