
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir einum og hálfum mánuði var lögum íslenska fánann breytt. Nú má flagga allan sólarhringinn, fram í miðjan ágúst. Við ræddum um þessa breytingu og ýmislegt annað sem tengist fánanum við Hörð Lárusson sem er vel heima í efninu.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá mikilli kæti í Þýskalandi eftir góðan sigur fótboltalandsliðsins á HM á sunnudaginn og fjallaði um gamalt bréf sem Sigmund Freud sendi kunningja sínum fyrir margt löngu en kom nýlega í leitirnar.
Á morgun fögnum við lýðveldisstofnuninni. Að vanda verður messa á Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar; séra Hildur Inga Rúnarsdóttir, prestur á Þingeyri, messar. Við slógum á þráðinn til hennar.
Tónlist:
Christopher Glynn, Rachel Podger - Sonata in F Major, op.24 : II. Adagio molto espressivo.
Valgeir Guðjónsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir - Vögguvísa í húsi farmanns.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.