Vegamál, upplausn í þýskum stjórnmálum og Vallanes
Við ræddum um umfangsmestu samgönguframkvæmd landsins á sínum tíma; Vestfjarðagöngin - 30 ár eru síðan þau voru tekin í gagnið. Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi þingmaður Vestfjarða,…
Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni. Tollar, heimsókn forsætisráðherra Danmerkur til Grænlands, mótmælin gegn Erdogan Tyrklandsforseta og þingkosningarnar fram undan í Kanada voru umfjöllunarefni dagsins.
Svo var rætt um lífið í landinu á miðöldum, Lilja Árnadóttir þjóðháttafræðingur kom til okkar.
Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um arkitektúr; um áhrif bygginga á fólk; hugmyndafræði, stíla og stefnur. Óskar Örn Arnórsson arkitekt og arkitektúrsagnfræðingur, var gestur okkar.
Tónlist:
Fílharmóníuhljómsveitin í Bergen - I ensomme stunde.
Cécile McLorin Salvant - Wuthering heights.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.