Morgunvaktin

Velsæld, dönsk mál og ebóla

Verg landsframleiðsla mælir efnahagslegt ástand hagkerfa en nær ekki fyllilega utan það sem skiptir máli - velsæld fólk, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Þrátt fyrir áratugi af vexti finnst mörgu fólki það verða útundan. Því þarf setja manneskjur og jörðina sjálfa í forgrunn ákvarðana. Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við metum mikils.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, sem við ræðum þegar þau Silja Elvarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason komu í þáttinn en þau eru meðal þeirra sem standa síðar í dag stofnun miðstöðvar velsældarhagkerfis hér á landi.

Borgþór Arngrímsson kom svo í þáttinn og ræddi dönsk málefni. Enn er Danmörk án ríkisstjórnar þó ýmislegt gerast í þeim málum. Við spjölluðum líka um hátt íbúðaverð í Kaupmannahöfn, sem Seðlabankinn þar í landi hefur áhyggjur af, og um konungsfjölskylduna.

Skæður ebólufaraldur geysar í Austur-Kongó og er þegar orðinn þriðji versti í sögu landsins. Ebóla blossar reglulega upp í Austur-Kongó en ebóluveiran greindist í fyrsta sinn í landinu, sem þá hét Saír, fyrir fimmtíu árum, eftir mannskæðan faraldur sem hverfðist um lítið sjúkrahús í afskekktu frumskógarþorpi. Vera Illugadóttir sagði þessa sögu.

Tónlist:

Tómas R. Einarsson, GDRN - Ég bið ekki um meir.

Les Go de Koteba - Tougna fo.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,