Tollar, Evrópumál og heilabilun
Bandaríkjastjórn notar tolla og hótanir um tolla í pólitískum tilgangi. Tollar hafa um aldir verið notaðir til tekjuöflunar, en þar til nýverið hafa þjóðir heims lagt mikla vinnu í…
Til eru nokkrar aðferðir við úthlutun sæta eftir kosningar, og þær byggja á skipulagi og stærðfræði. Þorkell Helgason stærðfræðingur hefur í rúm 40 ár verið ráðgjafi stjórnvalda í kosningamálum og hefur nú skrifað bókina Kosningafræðarinn.
Borgþór Arngrímsson sagði tíðindi frá Danmörku, meðal annars af því að Mette Frederiksen forsætisráðherra er flutt úr íbúð sinni í Kaupmannahöfn vegna áreitis.
Vera Illugadóttir sagði svo frá Kim Davis, sem hefur barist gegn hjónaböndum samkynhneigðra undanfarinn áratug en Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði í byrjun vikunnar að taka mál hennar fyrir.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.