Sjókonan Þorbjörg Kolka
Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi…
Jósep Jósepsson Axfjörð fór til Ameríku laust fyrir 1900 og miklar sögur gengu um líf hans þar. Hann var sagður hafa framið bankarán og jafnvel drepið mann. Hann sneri svo heim og álit fólks á honum var sérlega mismunandi. Ýmist var hann þrasgjarn letihaugur eða harðduglegur og mjög atorkusamur. Hann hafði ráðskonu í rúm 40 ár og hún sagði frá viðskiptum hans við einstaklega óþekkan hund.
Umsjón: Illugi Jökulsson.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.