Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.