Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.