Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Framhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.