Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.