Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Eftir fjögurra ára hlé gluggar umsjónarmaður aftur í æskuminningar Svetlönu, einkadóttur Stalíns, einræðisherra Sovétríkjanna. Hér segir einkum frá því þegar Svetlanda missti móður sína aðeins 6 ára gömul en móðir hennar virðist ekki hafa þolað kuldann og hráslagann í hjónabandi hennar og Stalíns.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.