Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Í þessum páskaþætti verður fjallað um uppruna hinna svokölluðu Zaraþústra-trúarbragða í Persíu. Þar segir frá ungum Baktríumanni sem gerbylti hugmyndum landa sinna um guðdóminn og lagði grunn að nýrri trú sem var síðan við lýði í tvö þúsund árum. Og snemma í sögu þessara trúarbragða höfðu þau mjög afdrifarík áhrif á trú Gyðinga og þar af leiðandi kristinna manna líka. Fyrri þáttur.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.