Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Þessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnast.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.