Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Framhald af síðasta þætti. Hér er áfram lesið úr viðtali Vilhjálms S. Vilhjálmssonar við Bjarna Brandsson sjómann sem nú segir m.a. frá því er hann kom úr siglingu haustið 1918 þegar spænska geisaði sem harðast í Reykjavík og síðan frá hörmulegu strandi togarans Jóns forseta við Stafnes 1928.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.