Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Ógnir hreinsana Stalíns og hans manna færast æ nær Kravténko sem reynir að halda velli sem yfirmaður verksmiðjunnar í Nicopol. Allt í kringum hann falla jafnvel eldheitir kommúnistar í valinn og svo gerist hið óumflýjanlega, röðin kemur að honum.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.