Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Breski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var falið að fylgja hópi sovéskra stríðsfanga frá Ítalíu áleiðis heim til Sovétríkjanna en þeir höfðu mátt þola hræðilega vist í þýskum fangabúðum, og er því lýst á mjög hispurslausan hátt. En ekki var víst að betra tæki við þegar til Sovétríkjanna kæmi.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.