Sjókonan Þorbjörg Kolka
Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi…
Páskahátíðin var upphaflega gyðingleg hátíð þar sem Gyðingar minntust þess þegar Móses leiddi þá burt frá Egiftalandi. En hvernig lentu þeir þar á annað borð? Í þættinum kemur við sögu Jósef, egifskar kýr (bæði feitar og magrar) og þáttastjórnandi reynir að svara spurningunni: Er eitthvað hæft í þessum sögum yfirleitt?

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.