
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Fullgeyst er farið í nýju áhættumati fyrir Grindavík, segir Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur. Ekki sé hægt að bera ástandið í Grindavík saman við ástandið í öðrum náttúruvár bæjum. Ekki sé hægt að gera ráð fyrir að Veðurstofan gefi út viðvörun.
Með áætluðu innviðagjaldi atvinnuvegaráðherra á að auka tekjur ríkissjóðs um sex komma sjö milljarða á ári. Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækis segir gjaldið veikja samkeppnisstöðu Íslands sem áfangastaðar.
Bandaríkjaforseti hefur stungið upp á því við Úkraínuforseta að næstu friðarviðræður við Rússa verði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Rússlandsher drap fimm manns í árásum á Kyiv í dag.
Meðalbiðtími barna eftir einhverfugreiningu er kominn yfir þrjú ár. Umboðsmaður barna segir að staðan sé ótæk og sjórnvöld þurfi að grípa til aðgerða.

Fréttir