
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Tafir í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli geta valdið miklum kostnaði og óþægindum fyrir ferðaþjónustufyrirtæki því erlendir ferðamenn þurfa að breyta ferðaáætlunum sínum og afbóka ferðir segir framkvæmdastjóri hjá Snæland Grímsson.
Ísraelsher handtók tugi Palestínumanna á Vesturbakkanum í dag eftir að minnst fjórir Palestínumenn og tveir ísraelskir hermenn létust í skotbardaga. Forsætisráðherra Ísraels hét harkalegum viðbrögðum við atvikinu.
Mikið álag er vegna dekkjaskipta á bifvélaverkstæðum á landsbyggðinni yfir sumartímann. Varadekk fylgja sjaldnast nýjustu bílunum.
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-sextán orrustuþotu.
Bæjarhátíðin Mærudagar er haldin á Húsavík um helgina. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri Norðurþings segir hátíðina hafa gengið vel fyrir sig í dag; þrátt fyrir að veðrið hefði mátt vera betra framan af.
Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego
Tæknimaður: Marteinn Marteinsson.
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir.

Fréttir